Upplýsingar

Afhending vöru

Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunar. Öllum pöntunum sem dreyft er af íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunar. Dýralækningar ehf bera samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi póstsins. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að hún er send frá Dýralækningum ehf til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. Hægt er að greiða 590kr. fyrir rekjanlegt bréf. Frí heimsending er á pöntunum 1.000 kr og yfir á höfuðborgrasvæðinu nema annað komi fram í lýsingu á vöru. Vörur sem sendar eru utan höfuðborgarsvæðis er komið frítt á pósthús og greiðir kaupandi fyrir sendinguna til Íslandspósts.

Sérstök ákvæði vegna sjúkrafóðurs

Netverslunin býður upp á sjúkrafóður fyrir hunda og ketti sem hafa verið ávísað slíku fóðri af dýralækni Dýraspítalanns í Garðabæ. Viðskiptavinir sem óska eftir að kaupa sjúkrafóður í netverslun þurfa að senda tölvupóst á netfangið vefverslun@dspg.is og við munum opna fyrir möguleika þinn til að versla sjúkrafóður ef það hefur verið mælt með því af dýralækni spítalanns.

Verð á vöru og sendingarkostnaður

Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingarkostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Við sendum allar vörur með Íslandspósti beint heim að dyrum. Sendingarkostnaður er samkvæmt gjaldskrá Íslandspósts.

 

Að skipta eða skila vöru

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínu upprunalegu óskemdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunar þann dag sem henni er skilað.

 

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allann sendingakostnað sem um ræðir. Eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.

 

   

Trunaður (Öryggisskilmálar)

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Privacy policy: All personal information will be strictly confidential and will not be given or sold to a third party.

 

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.

Governing law / Jurisdiction: These terms and conditions are in accordance with Icelandic law.