Fóður Belcando Puppy GF Poultry (kornfrítt) 4 kg

Fóður Belcando Puppy GF Poultry (kornfrítt) 4 kg

Regular price
6.695 kr
Sölu verð
6.695 kr
Regular price
0 kr
Uppselt
Unit price
per 
með vsk

Hvolpafóður án korns með mikið af alifuglakjöti. Margir ræktendur og hvolpaeigendur kjósa að fóðra með kornlausu hundafóðri. Þess vegna er mikilvægt að velja vel fóðrið strax í upphafi. Ferskt kjúklingakjöt og vandlega valin hráefni stuðla að því að BELCANDO® Puppy GF Poultry er auðmelt og auðþolað af ungum óþroskuðum mallakútum. Grænmetissamsetningin er orkuríkt amaranth, baunir og kartöflur sem eru bæði stútfull af næringarefnum og veita góða mettunartilfinningu. Bragðgóð sósa umlykur fóðrið ef það er bleytt upp í volgu vatni og hún hvetur hvolpinn til að byrja að éta fasta fæðu. Þetta gerir fóðrið jafn framt lyktar- og bragðmeira. Notað frá ca. 3 vikna aldri. Notkun hvolpafóðurs fer eftir stærð hvolpsins, smáar hundategundir nota BELCANDO® GF Poultry til allt að 8/9 mánaða aldurs. Meðalstórar og stórar hundategundir nota BELCANDO® GF Poultry eingöngu til 3/4 mánaða aldurs og færast þá yfir á Junior fóður, til dæmis Junior GF Poultry en það eru aðeins stærri bitar og hefur næringargildi miðað við annað þroskastig. Fyrir hvolpa af mjög stóru kyni (sem verða stærri en +40 kg sem fullorðnir) mælum við þó alltaf með Junior Maxi.

  • Fyrir hvolpa af miðlungs-stórum tegundum upp að 4 mánaða aldri
  • Fyrir unga hunda af smáum tegundum upp að 8/9 mánaða aldri
  • Fyrir unga hunda með viðkvæmni fyrir korni
  • + Auka ferskt kjöt – já þú last rétt fóðrið er framleitt úr fersku kjöti, ekki kjötmjöli
  • Inniheldur Egg – sem eru jú með eitt hæsta náttúrulega próteingildið sem er frábært fyrir litla hvolpa

Próteininnihald fóðursins er 29,5 % – sem skiptist í 80% dýraprótein + 20% jurtaprótein:

  • 80% próteinsins í BELCANDO® Puppy GF Poultry er dýraprótein (60% alifugl; 15% fiskur; 5% gelatín/beinamjöl)
  • 20% próteinsins í BELCANDO® Puppy GF Poultry er prótein úr jurtaríkinu

ProVital – styrkir ónæmiskerfi hundsins með frumuhlutum (Beta glucane) unnum úr náttúrulegum sveppum.
ProAgil – eykur brjóskmyndun í liðum og hindrar liðaskaða og liðavandamál með gelatín-kollagen hydrolísati.

BELCANDO® GF Poultry er framleitt án:

  • Kornvara (glúteinfrítt)
  • Soja
  • Mjólkurafurða

Feeding Recommendation

Recommended quantity of food per animal in g/day